sunnudagur, apríl 27, 2008

Nýjar myndir

Hér hefur verið ansi hljóðlátt síðustu vikur. Kellan búin að eiga afmæli (fékk ekki það sem var á óskalistanum eins og ég var búin að spá). En það er allt gott að frétta af fjölskyldunni. Baldur braggast mjög vel. Orðinn mikill skæruliði enda skríður hann/gengur með eins og vindurinn og þykist ekki skilja hvað orðin Nei! og Óó þýða. Ég hef hann nefnilega grunaðan um að skilja vel hvað þetta þýðir því það kemur alltaf mikill prakkarsvipur á hann þegar hann heyrir þetta. En það stoppar hann ekki.

En nýjar myndir má sjá hér. Vegna leti síðustu mánaða eru þetta heil þrjú albúm en aðeins tvö þeirra af Baldri.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Afmæli

Ég á bráðum afmæli. Ekki seinna vænna að undirbúa óskalista og skipuleggja veisluhöld. Ég er komin með tvennt sem Nonni getur valið um að gefa mér. Ef ég þekki hann rétt kýs hann að gefa mér hvorugt.

föstudagur, febrúar 08, 2008

Afríkudrottningin

Ég bendi á að Afríkudrottningin kann sér ekkert hóf í blogginu. Sem er gott.

Annars komum við heim í gær eftir þriggja tíma seinkun og nokkurt sveim yfir Keflavíkurflugvelli. Verð að hrósa flugstjórum Flugleiða gífurlega fyrir að hafa getað lent í veðrinu sem geisaði í gær. Mér fannst hin mesta svaðilför að hlaupa út í bíl með Baldur! Ég mun væntanlega ekki nota gallajakkann og sumarskóna sem ég keypti í vorveðrinu í London í bráð. A.m.k. ekki hérna á Íslandi.

Nú stara ca. 50 kíló af óhreinu taui á mig af gólfinu. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera húsmóðir.

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Anna sys...

... er á leið til Afríku í þrjá mánuði og er af því tilefni komin með blók. Anna Þorbjörg og pabbi voru af sama tilefni tekin út þar sem þau hafa engan vegin verið að standa sig á þessu sviði. Ég mun með glöðu geði setja þau aftur inn ef þau koma aftur.

mánudagur, janúar 21, 2008

Jól og áramót

Nýjar myndir eru komnar inn.

Gleðilegt nýtt ár!

mánudagur, desember 24, 2007

Jólakveðja


Fjölskyldan í Mávahlíð 15 sendir vinum, fjölskyldu og öðrum velunnurum jólakveðjur og þakkar fyrir árið sem er að líða. Það er nú aldeilis búið að vera viðburðarríkt og merkilegasta ár í ævi okkar allra.

miðvikudagur, desember 19, 2007

USA 2007

Þá getur fólk farið að anda rólega. Myndirnar úr snilldarferð fjölskyldunnar til vesturstrandarinnar eru komnar inn. Eins og gefur að skilja eru myndir af Baldri Ómari ráðandi á kostnað túristamynda.

fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Vond móðir?

Stundum velti ég því fyrir mér hvort ég gæti ekki verði betri móðir. Ég:
* Gleymi iðulega að gefa syni mínum AD dropa þrátt fyrir að amma segi að börn geti fengið beinkröm ef þeim er sleppt í nokkra daga.
* Gleymi stundum að bursta litlu tennurnar tvær á kvöldin.
* Brenndi fyrstu gulræturnar sem ég ætlaði að gefa honum.
* Hlakka meira til að versla á sjálfa mig en son minn í LA.

Greyið litla situr samt uppi með mig. Nýjar myndir úr sundinu á myndasíðunni.

þriðjudagur, október 09, 2007

Kaupmannahafnarmyndir

Eru komnar inn á myndasíðuna.

fimmtudagur, október 04, 2007

Flugdólgur

Þegar við komum heim frá Kaupmannahöfn á sunnudaginn var gaur í vélinni sem gerði eftirfarandi:
* Meig upp um alla veggi inni á flugvélarklósettinu.
* Gubbaði yfir sig, konuna næst sér og aðeins í sætið.
* Kúkaði tvisvar á sig.
* Fór svo að öskra þangað til hann farið var með hann í göngutúr um vélina.

Gaurinn heitir Baldur Ómar.

fimmtudagur, september 27, 2007

Hey Ben!

Amma var að hringja og spá í hvenær þú ætlaðir að skila jakkanum hennar?

miðvikudagur, september 26, 2007

Eitt grunnt

Mér finnst Keira Knightley alveg ágætis leikkona en guð minn góður hvað hún er leiðinleg. Hún er sífellt að nöldra og tuða um hvað hún þoli ekki að vera sökuð um að vera með anorexíu, hún sé sko líka með vandamál, að hún geti ekki gert að því að vera falleg og blablabla... Ef einhvern langar að pirrast með mér þá er þetta góð lesning.

Ég er að velta fyrir mér hver röðin sé á ástæðum þess að Jessica Biel sé með JT:
1) Hann er super hot.
2) Hún fær massa athygli út á sambandið.
3) Hann heillar hana á andlega sviðinu.

Ég myndi segja 213, hugsanlega 123.

þriðjudagur, september 25, 2007

Rosalega er mikið af Dönum hérna!

Nonni átti setningu ferðarinnar á laugardaginn þegar hann kom með þessa athugasemd. Sett í samhengi þá var hún alveg að gera sig en svona ein og sér þá var þetta dáldið mikið fyndið.

mánudagur, september 17, 2007

Til útlanda!

Þá er Baldur litli kominn til útlanda í fyrsta skipti. Nánar tiltekið til Kaupmannahafnar. Hann stóð sig alveg eins og hetja á ferðalaginu og var ekkert nema yndislegheitin alla ferðina. Mömmu sinni og ömmu til mikillar ánægju.
Við fórum í göngutúr í gær og heimsóttum m.a. litlu hafmeyjuna sem Baldur svaf reyndar af sér en pabba hans fannst þeim mun tilkomumeiri.Við bendum svo á að hlekkir á spássíu hafa verið uppfærðir. Nýjasta Moggabloggaranum hefur verið bætt við. En hann verður að vera duglegri að skrifa ef hann ætlar að viðhalda status. Anna Þorbie má líka alveg fara að láta í sér heyra... vér söknum hennar.